Guð minn
góður, ég er fallin í Náttúrufræði 123 :/, Ég var í prófi í dag úr
3 og 4 kafla og ég gjörsamlega skeit feitt á mig. Ég er alls ekki
stolt af því, en það er mér bara lífsins ómögulegt að læra þetta
utanað, Ég og náttúrufræði erum ekki vinir
Svo þegar ég var að
læra í gærkvöldi hringdi "nýja besta vinkona mín" hún Sunna í mig
og bauð mér að koma með henni, Olgu, Kidda, Einari, Öna, Reyni
og Eyjó á rúntinn og ég ákvað bara að skella mér þar sem ég átti
hvort sem ekkert eftir að skilja neitt í þessu, skella þessu bara
uppí kærusleysi eins og ég er farin að gera með margt núna þessa
dagana. En ég spurði nú hvort þau væru á rútu þar sem þau voru svo
mörg en þá voru bara tveir bílar. Ég,Sunna, Olga, Kiddi og Einar
vorum í Kidda bíl og Öni, Reynir og Eyjó í Öna bíl. Svo fórum
við bara að rúnnta eitthvað og hittumst hjá Digraneskirkju þar sem
Reynir var settur út í kælingu í 5 mín
frábært hvað hann hlíðir
alltaf
þótt það hafi verið grenjandi rigning
.. En svo endaði
kvöldið ekkert sérstaklega þar sem við fengum egg í rúðuna
(bílstjóramegin, ekki framrúðuna heldur hliðarrúðuna) og okkur brá
alveg fáránlega mikið og kiddi var meira að segja næstum því búinn
að keyra utaní bíl. Kiddi var sko
ekki sáttur og mikið rifrildi/þrjóska átti sér stað í dágóðan tíma
sem eiginlega eyðilagði alla stemmningu.. þannig að við
fórum bara
heim, og ég námshesturinn hélt bara áfram að læra, en ekki neitt
mikið bara smá.
Svo er ég að
fara með þessum vitleysingjum í bústað ásamt fleira fólki, Sunna
verður samt heima þar sem hún var í hálskyrtlatöku greyið í dag.
Þannig hún verður bara heima að éta ís alla helgina
.. En já
þessi bústaðaferð á eftir að vera hrikalega skrautleg býst ég við
.. Mikil drykkja á fólkinu.. En það er kominn tími til að
gera eitthvað skemmtilegt svona til tilbreytingar þar sem vikurnar
mínar líða bara.. án nokkurar tilbreytingar!...

Annars hef ég
ekkert meira að segja, vil bara benda fólki á að kommenta þegar það
skoðar síðuna, alveg 20-og eitthvað búin að skoða síðuna um daginn
og ekki eitt einasta comment, ekki nógu gott sko 
Andrea
-